ID: 11818
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1930
Árni Metúsalem Sveinsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1860. Dáinn 13. júlí, 1936 í Manitoba. Eftirnafnið Storm vestra.
Maki: Helga Bjarnadóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1867, d. 1926.
Börn: 1. Hermann 2. Kristín Aðalbjörg 3. Þóra Ágústa 4. Victoría 5. Arnína Helga 6. Stefanía Júlía 7. Sveinfríður 8. Florentína Sigurbjörg 9. Guðrún 10. Ármann Alexander 11. Norman.
Árni fór vestur til Kanada árið 1880 og fór fyrst til Minnesota og var þar í tvö ár. Þaðan lá leiðin til Winnipeg 1882 en árið 1886 nam hann land í Argylebyggðinni nálægt Belmont þorpi. Hann keypti annað land suðvestur af Glenboro og bjó þar í um 40 ár. Hann seldi lönd og bústofn árið 1925 , fór fyrst til Glenboro en seinna til Winnipeg.
