
Guðrún Aradóttir og dóttir hennar, María Jakobína Mynd Well Connected
Árni Sigvaldason: Fæddur 12. maí, 1847 í Vopnafirði í N. Múlasýslu. Dáinn 10. janúar, 1901.
Maki: Guðrún Aradóttir f. 1848 4. maí, í S. Þingeyjarsýslu. Hún var systir bræðranna Benedikts og Skafta. Dáin í Glenboro í Manitoba 8. apríl, 1923.
Börn: 1. Skafti Árni f. 1879; d. 5. september, 1952 2. Páll f. 1881; d. 27. júlí, 1883 3. Þóra (Thora) J. f. 1882; d. 5. mars, 1903 4. Júlía G. f. 13. apríl, 1884 5. María (Mary) Jakobína f. 23. desember, 1885 6. Frank f. 7. maí, 1887 7. Jón (John) f. 15. maí, 1889 8. Pálína (Pauline) Sigurbjörg f. 28. október, 1893.
Árni flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Flutti til Nýja Íslands og var þar og í Winnipeg en 1878 flutti hann á land sitt í Lincolnbyggð í Minnesota. Guðrún var ein þeirra sem voru í litlum hópi Norðlendinga sem árið 1873 sigldu brott á Hjálmari, litlu seglskipi til Noregs. Þaðan til Vesturheims. Hún flutti til Glenboro í Manitoba eftir að Árni dó.

