
Árni Þorkelsson og Margrét Eyjólfsdóttir og fjögur börn þeirra. Mynd SÍND
Árni Þorkelsson fæddist 1850 í S. Múlasýslu. Dáinn í maí, 1900 í N. Dakota. Scheving vestra.
Maki: 1882 Margrét Eyjólfsdóttir f. 19. október, 1860 í N. Múlasýslu, d. Seattle 26. ágúst, 1943.
Börn: 1. Stefán Þorkell f. 16. september, 1882 2. John f. 1884 3. Einar f. 1886 4. Arthur Sigurjón f. 1888 5. Harry f. 1890 6. Árni f. 16. september, 1900.
Árni flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með móður sinni Ólöfu Einarsdóttur, stjúpföður og systkinum. Þau settust að í Nýja Íslandi en þar var fyrir Einar, bróðir Árna sem fór þangað árið áður. Árni og Einar fluttu suður til N. Dakota árið 1879 og námu land austur af Cavalier í svonefndri Carlislebyggð. Þeir bjuggu þar félagsbúi ásamt fjölskyldum sínum til ársins 1895 en þá seldi Einar sinn hlut. Tveimur árum síðar seldi Árni sína jörð og settist að í Parkbyggð.
