Ástríður Einarsdóttir

ID: 1622
Fæðingarár : 1887
Dánarár : 1957

Ástríður Einarsdóttir Mynd A Century Unfolds

Ástríður Einarsdóttir fæddist í A.- Skaftafellssýslu 24. janúar, 1887. Dáin í Nýja Íslandi 30. maí, 1957. Ásta vestra.

Maki: 31. desember, 1909 Magnús Gíslason f. í Mikley 8. maí, 1887, d. 25. nóvember, 1961 í Gimli.

Börn: 1. Einar f. 1. mars, 1910 2. Gíslína Guðrún f. 18. apríl, 1911  3. Halli f. 9. apríl, 1912 4. Stefán Louis f. 14. nóvember, 1914 5. Helga f. 5. febrúar, 1916 6. Guðný Júlíana 18. júlí, 1918 7. Njáll f. 29. janúar, 1920 8. Rafnkell Sigurður d. ungbarn 9. Torfhildur f. 1. febrúar, 1924 10. Jóhann Páll f. 25. apríl, 1926.

Magnús var sonur Gísla Árnasonar og Dýrunnar Steinsdóttur úr Skagafirði, landnámsmenn í Nýja Íslandi. Hann var bóndi í Framnesbyggð og keypti landið af Percy C. Jónassyni í Víðirbyggð.  Ástríður fór vestur með foreldrum sínum, Einari Stefánssyni og Lovísu Benediktsdóttur árið 1904.