Benedikt Arason

ID: 9627
Fæðingarár : 1837
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1923

Benedikt Arason fæddist í S. Þingeyjarsýslu 13. október, 1837. Dáinn 5. maí, 1923 í Nýja Íslandi.

Maki: 1866 Sigurveig Jónsdóttir f. 15. desember, 1847 í S. Þingeyjarsýslu.

Börn: 1. Vigfús f. 9. apríl, 1867 2. Sigrún f. 13. desember, 1868 3. Tryggvi f. 26. september, 1870 4. Ari f. 25. október, 1873 5. Skapti f. 22. mars, 1888 6. Guðný 7. Jóna.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru eitt ár í Kinmount. Þaðan fóru þau vestur til Nýja Íslands og settust að á Gimli. Benedikt nam land í Víðirnesbyggð og nefndi Velli þar sem fjölskyldan bjó í fjögur ár. Árið 1881 flutti fjölskyldan í Kjalvík í sömu byggð en Skafti, bróðir Benedikts var þá þaðan fluttur í Argylebyggð.