ID: 9157
Fæðingarár : 1838
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Benedikt Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 22. júlí, 1838. Dáinn í Alberta 12. júlí, 1910.
Maki: Sesselja Pálsdóttir f. 1853 í Eyjafjarðarsýslu. Cecilía í Manntali 1860!
Börn: 1. Júlíus f. 1872 2. Benedikt f. 1872 3. Jón 4. Páll 5. Helgi 6. Guðlín.
Benedikt og Sesselja fluttu vestur með tvíburana árið 1873 og fóru til Ontario í Kanada. Þau bjuggu í Rosseau í tvö ár en fóru vestur til Nýja Íslands haustið 1875. Þar bjuggu þau í þrjú ár en fóru þá suður til N. Dakota. Benedikt var í fyrsta landkönnunarhópi með Jóhanni P Hallssyni sem könnuðu lönd vestur af Cavalier. Hann bjó fyrst í Hallson en nam land í Garðarbyggð árið 1880. Þaðan lá leið þeirra vestur í Markerville í Alberta árið 1888.
