Bergljót Eiríksdóttir

ID: 12954
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1968

Bergljót Eiríksdóttir Mynd HoAaD

Bergljót Eiríksdóttir fæddist í N. Múlasýslu 4. nóvember, 1877. Dáin í Arborg í Manitoba 5. ágúst, 1968.

Ógift og barnlaus.

Bergljót flutti vestur til Minnesota árið 1878, með foreldrum sínum, Eiríki Jónssyni og Vilborgu Stefánsdóttur. Þau settust að í Minneota og bjuggu þar í 12 ár. Þaðan fór Bergljót með þeim til Duluth og síðan í Akrabyggð í N. Dakota. Árið 1901 flutti fjölskyldan til Manitoba og nam Eiríkur land skammt frá Arborg. Bergljót var ung þegar henni var falið að annast um bágstadda ættingja og seinna aldna foreldra sína. Þetta var hennar hlutskipti í lífinu.