Bjarni Sveinsson

ID: 11996
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : V. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1962

Bjarni Sveinsson fæddist í V. Skaftafellssýslu 5. maí, 1876. Dáinn í Vancouver árið 1962.

Maki: 27. október, 1897 Matthildur Þorvarðardóttir f. í A. Skaftafellssýslu 30. ágúst, 1873, d. á Betel í Gimli 10. maí, 1969.

Börn: 1. Stefán Ólafur f. á Vopnafirði 13. mars, 1901 2. Þorvarður f. í Winnipeg 16. desember, 1903 3. Sveinn f. í Winnipeg 9. janúar, 1906 4. Karl Bjarni f. 22. mars, 1908 í Winnipeg 5. Þorvarður Gunnar f. 29. október, 1909 6. Ingibjörg f. 3. september, 1911 7. Gróa f. 16. september, 1913 8. Guðveig Margrét f. 27. nóvember, 1915, d. 3. desember, 1954 9. Halldóra Esther f. 11. apríl, 1919, d. 1976.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1903 þar sem þau bjuggu í 12 ár. Þaðan lá leiðin í Ísafoldarbyggð þar sem þau bjuggu til ársins 1923 en þá fluttu þau í Keewatin í Ontario. Árið 1960 flutti Bjarni vestur að Kyrrahafi en Matthildur til Winnipeg.