Bjarni Þorsteinsson

ID: 12396
Fæðingarár : 1868
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1943

Bjarni Þorsteinsson Mynd VÍÆ I

Bjarni Þorsteinsson fæddist í N. Múlasýslu 16. desember, 1868. Dáinn í Winnipeg 21. maí, 1943.

Maki: 6. júní, 1897 Björg Jónsdóttir f. í N. Múlasýslu 31. desember, 1877, d. í Winnipeg 10. apríl, 1942.

Börn: 1. Jón f. 17. desember, 1898, d. 30. október, 1953 2. Anna f. 15. mars, 1900 3. Þorsteinn f. 3. júní, 1901 4. Guðrún Björg f. 15. janúar, 1904, d. 22. október, 1904 5. Jóhann Magnús f. 19 mars, 1905, d. 24. ágúst, 1948 6. Guðrún Helga Ingveldur f. 14. maí, 1908.

Bjarni ólst upp í Borgarfirði eystri, fór svo rúmlega tvítugur til Kaupmannahafnar í nám.  Byrjaði í trésmíði, hætti því og sneri sér að tungumálum og ljósmyndun. Sneri aftur til Íslands vorið 1897 og gifti sig. Vann ýmis störf eystra en árið 1903 fluttu hjónin vestur um haf og settust að í Winnipeg. Þar vann Þorsteinn  við húsasmíði en 1907 fluttu þau til Selkirk þar sem hann stundaði ljósmyndun og framköllun mynda. Þar bjuggu þau til ársins 1939, fluttu þá aftur til Winnipeg.  Björg var dóttir Jóns Jónssonar frá Sleðbrjót og Guðrúnar Jónsdóttur sem fluttu vestur sama ár með nokkur börn.