Bjarnþór Jónsson

ID: 3419
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : Mýrasýsla
Dánarár : 1958

Bjarnþór Jónsson Mynd A Century Unfolds

Kristín Margrét Eiríksdóttir Mynd A Century Unfolds

Bjarnþór Jónsson fæddist í Mýrasýslu 29. ágúst, 1884. Dáinn í Arborg í Manitoba 6. apríl, 1958. Bjarnthor (Thor) J. Lifman vestra.

Maki: 21. apríl, 1913 Kristín Margrét Eiríksdóttir f. 16. mars, 1884 í Minneota.

Börn: 1. Bergþóra f. 18. júlí, 1914 í Winnipeg 2. Margrét f. 24. febrúar, 1916 í Winnipeg 3. Laufey f. 4. október, 1918 í Gimli 4. Baldur f. 9. ágúst, 1921 í Arborg 5. Stefanía f. 4. júní, 1923 í Arborg 6. Solborg Guðrún f. 29. september, 1927.

Bjarnþór fór vestur til Manitoba með foreldrum sínum, Jóni Þorsteinssyni og Solveigu Bjarnadóttur, sem fóru til Nýja Íslands. Eftir nokkurn tíma þar ákváðu þau að flytja til Winnipeg. Bjarnþór var þá tekinn í fóstur af Kristjáni Sigurðssyni Lifman og konu hans, Guðlaugu Sigfúsdóttur á Gimli. Seinna tók Bjarnþór nafn fjölskyldunnar. Hann var ráðinn sölumaður hjá International Harvester Co. þar sem hann vann í 35 ár. Þau hjón bjuggu lengstum í Arborg.

 

 

Íslensk arfleifð :