Björg Kristjánsdóttir fæddist 16. nóvember, 1860 í S. Þingeyjarsýslu.
Maki: Sigvaldi Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 14. október, 1848. Dáinn í Saskatchewan fyrir 1920.
Börn: Björg átti dóttur með Jósef Jónssyni. Hét sú Elín Ragnheiður f. á Burstafelli í Vopnafirði 8. október, 1886, d. í Bresku Kólumíu árið 1969. Sigvaldi átti 1. Sigríði f. 1876 2. Stefán f. 1882.
Sigvaldi og Björg fluttu vestur árið 1889 og komu fyrst til Winnipeg í Manitoba. Þaðan fóru þau vestur í Saskatchewan og námu land austur af Churchbridge árið 1890. Þurrkaskeið á sléttunni hrakti þau, líkt og svo marga aðra, af landi sínu og fóru þau til Winnipeg þar sem þau voru með mjólkurbú. Bæði Sigvaldi og Björg áttu ættingja í Nýja Íslandi og árið 1901 námu þau land í Fljótsbyggð og nefndu Burstafell. Árið 1902 eru þau þar skráð með Elínu eina, ekkert er vitað um örlög Sigríðar og Stefáns. Ekki vegnaði þeim vel í Nýja Íslandi og á árunum 1903-1904 komu þau sér fyrir á landi norður af Elfros þar sem Sigvaldi bar beinin en hann varð fyrir eldingu. Björg vann í byggðinni einhver ár en flutti til Kaliforníu um 1930 en Snorri, bróðir hennar, bjó þá í San Diego. Hún sneri aftur til Saskatchewan að tíu árum liðnum þar sem hún lést hjá Elínu, dóttur sinni.
