Brynjólfur Jónsson

ID: 9550
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1941

Brynjólfur Jónsson og fimm börn hans Mynd SÍND

Brynjólfur Jónsson fæddist 16. apríl, 1850 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Saskatchewan 19. maí, 1941.

Maki: 1874 Guðrún Jónsdóttir f. 10. september, 1850, d. 31. október, 1918.

Börn: 1. Jón 2. Steingrímur f. 7. apríl, 1879, d. 16. apríl, 1946 3. Kristinn 4. Elín 5. Karólína 6. Haraldur.

Brynjólfur og Guðrún fóru vestur til Ontario í Kanada árið 1873. Þau voru í fámennum hópi Íslendinga sem settist að í Cardwellbyggð og bjuggu þar til ársins 1884 en þá fluttu þau í byggðina í N. Dakota og námu land miðja vegu milli Mountain og Garðar. Þaðan lá leið þeirra í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 þar sem þau námu land í Wynyardbyggð.