
Séra Carl J Olson Mynd VÍÆ II
Carl Jónasson Olson fæddist í Minnesota 24. nóvember, 1884, dáinn 10. september, 1951 í Nebraska. Rev. Carl J. Olson vestra.
Maki: 1) 18. september, 1913 Ólöf Sveinfríður Gísladóttir f. 12. júlí, 1891 í Minnesota, d. 31. desember, 1925 í Brandon í Manitoba. 2) 4. ágúst, 1942 Ásta Laufey Davíðsdóttir f. 1. maí, 1917.
Börn: Með Ólöfu 1. Katherine Margaret f. á Gimli 17. desember, 1914 2. Ingibjörg Lillian f. á Gimli 19. mars, 1917 3. Carl Jonas f. 10. janúar, 1919 4. Gísli Robert f. 9. júní, 1922.
Carl var sonur Jónasar Ólafssonar og Katrínar Magnúsdóttur sem bjuggu í Lincoln sýslu í Minnesota. Þar gekk hann í barna- og unglingaskóla en fór svo í framhaldsnám í Gustavus Adolphus háskólann í St. Peter í Minnesota. Hann kaus guðfræði og var vígður prestur í kirkju íslenska safnaðarins í Minneota 30. apríl, 1911. Starfaði víða sem prestur bæði í Kanada og Bandaríkjunum.
