Edward L Eiríksson

ID: 17487
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1886
Dánarár : 1964

Edward Lárus Eiríksson Mynd VÍÆ II

Andrea Jónasardóttir Mynd VÍÆ II

Edward Lárus Eiríksson fæddur í Minneota, Minnesota 26. apríl, 1886. Dáinn 28. nóvember, 1964. Skrifaður Johnson vestra

Maki: 18. júlí, 1914 Andrea Jónasardóttir f. 30.maí, 1891 í Akra í N. Dakota. Dáin 5. febrúar, 1966. Dóttir Jónasar Tryggva Ingjaldssonar.

Börn: Sigrún Jóhanna 2. Kristine 3. Edward Lionel. Ólu upp George Bessason.

Edward var sonur Eiríks Jónssonar og Vilborgar Stefánsdóttur sem vestur fluttu árið 1878. Þau bjuggu í Minneota í Minnesota, fluttu þaðan til Duluth fáeinum árum fyrir aldamót og þaðan í Akrabyggð í N. Dakota. Námu land í Manitoba árið 1901 og bjuggu í Árdals- og Framnesbyggð. Andrea ólst upp í Akrabyggð í N. Dakota en lauk framhaldsmenntun í Winnipeg.