ID: 1423
Fæðingarár : 1868
Dánarár : 1916

Einar Sigurðsson Mynd VÍÆ II

Kristinn Einarsson Mynd VÍÆ II
Einar Sigurðsson fæddist í Rangárvallasýslu 29. febrúar, 1868. Dáinn í Alberta í Kanada 26. júní, 1916.
Maki: Bergþóra Bergsteinsdóttir f. 15. mars, 1873 í Rangárvallasýslu.
Börn: 1. Kristinn f. í Árnessýslu 28. september, 1895 2. Anna Sigríður f. 7. janúar, 1901 í Rangárvallasýslu.
Einar fór einsamall vestur árið 1893 en sneri aftur til Íslands árið 1895. Var brúarvörður við Þjórsá árin 1897-1905. Þá flutti hann aftur vestur með konu og börn og fór fjölskyldan til Winnipeg. Þar vann hann hjá C.N.R. járnbrutafélaginu fyrstu árin en 1909 tók hann land í Alberta með Kristni sínum. Þar hét Butze og bjó Einar þar til dauðadags.