Einar Þorkelsson

ID: 7578
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Einar og Oddfríður með Stefán, Bergþór og Lilju. Mynd WtW

Kjartan Ingimundur. Hann varð læknir og vann lengstum á Gimli. Mynd WtW

Einar Þorkelsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 26. júlí, 1866. Einar Johnson vestra.

Maki: 6. október, 1893 Oddfríður Þórðardóttir f. 23. október, 1870 í Mýrasýslu, d. 1945.

Börn: 1. Stefán Þorkell f. 1894, d í Winnipeg 1943 2. Bergþór Emil f. 1896 3. Sigurbjörg Lilja 4. Dýrfinna Klara f. 3. október, 1904, d. mánaðargömul 5. Kjartan Ingimundur f. 14. október, 1914.

Einar fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og vann þar í borg fyrstu árin. Fór til Nýja Íslands og stundaði flutninga. Oddfríður fór vestur með móður sinni, Bergþóru Bergþórsdóttur og stjúpföður, Sigurði Sigurðssyni árið 1887 og settust þau að í Mikley. Einar og Oddfríður settust að í Lundarbyggð árið 1903 og bjuggu þar til ársins 1929, þá fluttu þau til Winnipeg.