ID: 11528
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1937
Sigríður Einarína Sigurðardóttir fæddist 11. nóvember, 1857 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 28. janúar, 1937 í Winnipeg.
Maki: Jónas Helgason f. á Arndísarstöðum í Bárðardal í S. Þingeyjarsýslu 7. apríl, 1860, d. í Argylebyggð 22. júní, 1951
Börn: 1. Helgi f. 14. apríl, 1887 2. Erlendur f. 1891 3. Guðlaug f. 2. júlí, 1893 4. Ingólfur f. 1895 5. Friðrik (Frederick) f. 1899 6. Kristján f. 1901. 7. Kristbjörg (fósturdóttir)
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og fóru þaðan vestur í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Ári seinna námu þau land í Argylebyggð og bjuggu vel þar. Nærri aldamótum keypti hann land í byggðinni og reisti þar veglegt hús úr blágrýti, eina húsið af þeirri tegund.
