Elín Guðvaldsdóttir

ID: 11783
Fæðingarár : 1885
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Elín Guðvaldsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 7. september, 1885.

Maki:1903 í Minnesota Haraldur Björnsson f. 1883 í N. Dakota, d. 1934 í Elfros í Vatnabyggð.

Börn: 1. Anna f. 14. september, 1904 2. Hróðný f. 23. október, 1907.

Elín flutti vestur árið 1888 með foreldrum sínum, Guðvaldi Jónssyni og Kristínu Þorgrímsdóttur og systkinum. Þau settust að í N. Dakota, fóru þaðan austur yil Roseau í Minnesota árið 1899 og 1907 í Vatnabyggð í Saskatchewan. Foreldrar Haraldar, Björn Einarsson og Jóhanna Jóhannesdóttir fluttu til Nýja Íslands árið 1876 og voru þar til ársins 1880. Þá fluttu þau suður til N. Dakota þar sem þau bjuggu til aldamóta en þá lá leið þeirra austur til Roseau þar sem Haraldur og Elín gengu í hjónaband. Fluttu þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan.