
Elín Þórdís Magnúsdóttir Mynd VÍÆ II
Elín Þórdís Magnúsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 27. september, 1895.
Maki: 15. apríl, 1917 Hannes Kristjánsson f. á Tjörnesi í N. Þingeyjarsýslu 6. september, 1883. Dáinn í Manitoba 23. janúar, 1957.
Börn: 1. Baldur Hannes f. 2. júlí, 1918 2. María Guðlaug f. 8. ágúst, 1919 3. Kristján f. 4. janúar, 1921 4. Alda Jóhanna f. 26. maí, 1922 5. Gladstone Albert f. 17. desember, 1923 6. Luther Burbank f. 17. október, 1928 7. Ragnar Lawrence f. 29. ágúst, 1930 8. Leo Frímann f. 28. febrúar, 1932.
Elín flutti vestur árið 1903 með föður sínum, Magnúsi Jóhannssyni, þau settust að á Gimli í Nýja Íslandi. Elín bjó þar alla tíð. Hannes var sonur Kristjáns Sigurjóns Guðmundssonar og Helgu Jóhönnu Þórðardóttur, sem vestur fluttu árið 1888 og settust að í Nýja Íslandi. Þar óx Hannes úr grasi og gekk í skóla á Gimli. Bjó þar alla tíð.
