Elinborg S Samúelsdóttir

ID: 20156
Fæðingarár : 1869
Dánarár : 1943

Elinborg Salome Samúelsdóttir fæddist í Húnavatnssýslu 21. nóvember, 1869. Dáin í Victoria á Vancouver-eyju 22. janúar, 1943.

Maki: Kristján Sigurgeirsson fæddist í Barðastrandarsýslu 3. desember, 1864. Christian Sivertz vestra.

Börn: 1. Henry George f. í Victoria 15. nóvember, 1893 2. Gustav f. 29. júlí, 1895 3. Christian f. á Point Toberts 30. september, 1897 4. Victorian f. í Victoria 25. janúar,1900 5. Bent Gestur f. 11. ágúst, 1905 í Victoria 6. Samuel f. 16. júlí, 1907.

Elinborg var dóttir Samúels Björnssonar og Gróu Jónsdóttur í Grafarkoti í Húnavatnssýslu. Hún flutti til Vesturheims fyrir 1892 og flutti vestur að Kyrrahafi.  Kristján var sonur Sigurgeirs Sigurðssonar og Björgu Jónsdóttur sem fóru vestur árið 1887 og bjuggu á Point Roberts. Kristján fór vestur árið 1883 með Birni Skaftasyni úr Húnavatnssýslu. Kristján bjó í Winnipeg í sjö ár, flutti svo þaðan til Victoria á Vancouver-eyju og bjó þar eftir það.