Elísabet Jóhannsdóttir

ID: 12029
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Elísabet Jóhannsdóttir fæddist 28. desember, 1856 í N. Múlasýslu

Maki: Kristján Jónsson f. 9. apríl, 1857 í N. Múlasýslu. Vopnford eða Wopnford vestra. C. J. Wopford

Börn: 1. Kristján Halldor Kristjansson  f. 1885 á Íslandi, d. 13. október, 1907 í Lyon sýslu. 2. Jóna (Jenny) Sigurbjörg f. 9. júní, 1889 3. Vilhelmína Guðrún f. 11. apríl, 1892 4. Bergvin Jóhann Vilhjálmur f. 2. júlí, 1894 5. Jóhanna Elísabet f. 12. ágúst, 1895 6. Guðrún Ingibjörg f. 28. apríl, 1898, tvíburi 7. Kristín Elísabet f. 28. apríl, 1898, tvíburi 8. Bergvin Jósef (Joseph) f. 11. febrúar, 1900.

Elísabet var dóttir hjónanna Jóhanns Jónssonar og Guðbjargar Vilhjálmsdóttur er bjuggu á Ljósalandi í N. Múlasýslu. Hún og Kristján fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og seinna þaðan til Minneota í Lyon sýslu í Minnesota. Þar er fjölskyldan skráð í manntali árið 1900 og 1905.  Kristján var bróðir Bervins sem þar bjó og að honum látnum tóku Kristján og Elísabet dóttur Bergvins, Elísabetu í fóstur. Þau fluttu til Winnipeg og eru þar skráð í manntali árið 1916.