
Elísa Kristjánsdóttir ásamt dottur sinni Eudora Mynd WtW
Elísa Kristjánsdóttir fæddist 10. nóvember, 1893 í Pembina, N. Dakota. Dáin í Vancouver, árið 1973. Eliza Gislason vestra.
Maki: 18. desember, 1911 í Tantallon, Saskatchewan, Oddur Stefán Einarsson fæddist í Pembina, N. Dakota 11. mars, 1891. Dáinn í Vancouver 2. október, 1973. Oddur Bjarnason vestra.
Börn: 1. Teitur d. ungbarn 2. Elwin 3. Eudora 4. Raymond 5. Einar 6. Ívar 7. Laurence 8. Annetta 9. Harold 10. Marvin.
Elísa var dóttir Kristjáns Gíslasonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur í Pembina, N. Dakota. Hún fór í Vallarbyggð árið 1905. Oddur var sonur Einars Bjarnasonar og Ingibjargar Teitsdóttur í Pembina sýslu í N. Dakota. Oddur flutti með þeim norður í Gerald, Vallarbyggð, í Saskatchewan árið 1905. Hann fór snemma að vinna hjá nágrönnum í byggðinni.
