Ella Magnúsdóttir

ID: 20152
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1905

Ella Magnúsdóttir fæddist í Blaine í Washington 22. júní, 1905.

Maki: Gunnlaugur Helgason fæddist á Point Roberts í Washingtonríki 9. október, 1907.

Börn: 1. Robert Magnús f. 23. desember, 1931 2. Sylvia Dagbjört f. 23. desember, 1931.

Ella var dóttir Magnúsar Þórðarsonar og Jóhönnu Þorsteinsdóttur í Blaine. Gunnlaugur var sonur Helga Þorsteinssonar og Dagbjartar Dagbjartsdóttur, landnema á Point Roberts árið 1894.  Gunnlaugur lauk grunnskólanámi á Point Roberts og siglingafræði frá sjómannaskóla í Seattle. Hann stundaði sjóinn og var skipstjóri 1919-1935, hætti þá sjómennsku og gerðist bóndi á Point Roberts. Þar bjuggu þau alla tíð.