Eyjólfína Eyjólfsdóttir

ID: 14596
Fæðingarár : 1856
Dánarár : 1931

Guðrún Eyjólfína Eyjólfsdóttir fæddist 6. september, 1856 í S. Múlasýslu. Dáin 12. maí, 1931 í Lundarbyggð.

Maki: Guðmundur Bjarnason f. 12. mars, 1847 í N. Múlasýslu, d. í Lundarbyggð 7. mars, 1921.

Börn: 1. Stefán Ágúst f. 10. ágúst, 1886 í Winnipeg, d. 18. nóvember, 1922 2. Ingveldur f. 26. september, 1888 í Winnipeg, d. 4. apríl, 1913 3. Eyjólfur f. 14. febrúar, 1891 4. Þóra (Thora) f. 1894 5. Kristján f. 29. mars, 1896 6. Jón Helgi f. 29. september, 1898 7. Björgmann 13. desember, 1900.

Guðmundur og systurnar, Guðrún Eyjólfína og Stefanía Eyjólfsdætur voru samferða vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1882. Þar gengu þau Guðmundur og Eyjólfína í hjónaband og bjuggu í borginni til ársins 1900. Þá fluttu þau í Mary Hill í Lundarbyggð og hófu búskap.