Friðjón Friðriksson

ID: 10421
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1913

Friðjón Friðriksson Mynd Almanak 1907

Friðjón Friðriksson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 21. ágúst, 1849. Dáinn í Winnipeg 17. ágúst, 1913. Fredrickson vestra.

Maki: 10. júlí, 1873 Guðný Sesselja Sigurðardóttir f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1857, d. 9.mars, 1949.

Börn: 1. Aurora f. á Gimli 4. september, 1877 2. Hermann f. 10. júlí, 1879, d. fárra ára gamall 3 Kári f. 15. október, 1888 í Glenboro 4. Haraldur f. 1892 í Glenboro, d. 1967.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og voru þar eitthvað. Þaðan lá leið þeirra til Milwaukee í Wisconsin en þaðan fóru þau til baka til Ontarion og snemma árs, 1875, tók Friðjón að sér verslun Sigtryggs Jónassonar í Kinmount. Fór þaðan með fyrsta hópnum til Nýja Íslands og opnaði og rak verslun á Gimli næstu fimm árin.  Var svo á ýmsum stöðum í fylkinu en tók svo fyrstu lestina til Glenboro árið 1886 og settist þar að. Opnaði verslun og rak með sóma til ársins 1906 en þá seldi hann þar, flutti til Winnipeg og bjó þar alla tíð.