
Friðrik Guðmundsson Mynd VÍÆ IV
Friðrik Guðmundsson fæddist í Víðidal á Hólsfjöllum í N. Þingeyjarsýslu árið 1861. Dáinn 3. maí, 1936 við Mozart í Saskatchewan.
Maki: 1) 1883 Guðrún Jakobsdóttir f. 19. ágúst, 1861, d. 11. apríl, 1886 2) 20. október, 1890 Þorgerður Jónsdóttir, f. í N. Þingeyjarsýslu 24. október, 1864, d. í hvirfilbyl 18. júní, 1927.
Börn: With Guðrúnu 1. Laufey f. 31. desember , 1884, d. October 29, 1969. Með Þorgerði 1. Guðmundur f. 9. ágúst, 1891 2. Guðrún f. 12. júlí, 1893 3. Helga f. 20. janúar,1895 4. Jónas f. 3. nóvember, 1896, d. í æsku á Íslandi 5. Jakob Holt f. 1898 6. Jóhann f. 18. nóvember, 1899 7. Ingólfur f. 22. apríl, 1901 8. Jón f. 12. júní, 1903 9. Arnþrúður f. 1905 19. Aðalbjörg f. í Kanada 1908.
Þau fluttu vestur til Saskatchewan árið 1905 og settust að á landi nærri Mozart í Vatnabyggð. Friðrik var frumbyggi í byggðinni og lét þar margt gott eftir sig liggja m.a. skráði hann upphafsþátt sögu Vatnabyggða sem birtur var í Almanakinu árið 1917. Lauk aldrei verkinu vegna sjóndepru og var blindur síðustu 15 ár ævinnar. Sjá Íslensk arfleifð að neðan.
