
Friðrik Jóhannesson Mynd SÍND

Ingibjörg Guðmundsdóttir Mynd SÍND
Friðrik Jóhannesson fæddist 23. maí, 1832 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 30. júlí, 1913 í Manitoba.
Maki: 1) 1855 Solveig Benediktsdóttir f. 1832 í S. Þingeyjarsýslu. 2) 1884 Ingibjörg Guðmundsdóttir f. 26. október, 1844.
Börn: Með Solveigu 1. Jóhann Tryggvi f. 1856 2. Karl f. 1866 3, Friðrika Sigríður f. 1858, d. 1864. Með Ingibjörgu 1. Guðný Margrét f. 16. nóvember, 1884 2. Guðrún Guðfinna f. 4. október, 1888. Ingibjörg átti fyrir soninn Guðna Hansson f. 1874. Hann skrifaði sig Gudni Goodman og bjó í Seattle.
Friðrik og Solveig fóru vestur til Ontario í Kanada árið 1874. Fluttu til Lockport í Nova Scotia og bjuggu þar til ársins 1880 en fóru þá vestur til Winnipeg í Manitoba. Þar skildu þau. Friðrik fór þá suður í Garðarbyggð í N. Dakota og seinna í Sandhæðabyggð.
