Friðrik Jónasson

ID: 12957
Fæðingarár : 1868
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1954

Friðrik Hermann Jónasson fæddist 19. desember, 1868 á Aðalbóli í N. Múlasýslu. Dáinn 16. desember, 1954 í Michigan. Frederick H. Fljozdal (Fljótsdal) vestra.

Maki: 1893 í Warren, Minnesota; Christina Nygren f. 1976, d. 1956.

Börn: 1. Madeline P f. 1895 2. Edna F. f. 1897 3. Olive G. f. 1898 4. Leonard T. f. 26. júlí, 1899, d. 1959 5. Myrtle f. 1902 6. Lyle Leroy f. 1904

Friðrik var sonur Árna Brynjólfssonar og Kristrúnar Jónsdóttur en hjónin Eiríkur Jónsson og Vilborg Stefánsdóttir tóku hann fárra ára í fóstur. Með þeim fór Friðrik vestur til Minnesota árið 1878, þá aðeins tíu ára. Hann gekk í skóla í Minneota en fór ungur að vinna fyrir sér. Árið 1889 flytur hann til Duluth þar sem hann vann tvö ár við járnbrautir. Gerðist síðan bóndi í Warren í Minnesota en 1898 sneri hann sér aftur að járnbrautum og nú hjá kanadísku járnbrautafélagi. Gerðist starfsmaður bandalags járnbrautastarfsmanna og varð seinna fórseti þess. (Sjá Atvinna)

Atvinna :