
Friðrik Kristjánsson Mynd VÍÆ 1
Friðrik Kristjánsson fæddist 23. júní, 1884 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Winnipeg 23. febrúar, 1954.
Maki: Hólmfríður Jósefsdóttir f. 6. október, 1892 í Dalasýslu.
Börn: 1. Palmey Unnur f. 4. ágúst, 1915 2. Ásgerður Jósefína (Ása) f. 5. maí, 1918 3. Unnur f. 29. desember, 1919, d. 5. febrúar, 1922 4. Aðalsteinn f. 22. ágúst, 1923 5. Guðbjörg (Bertha) f. 16. janúar, 1926 6. Unnur Anna f. 23. september, 1936.
Friðrik flutti vestur til Winnipeg árið 1906 og í félagi við Aðalstein bróður sinn, sem vestur fór nokkru áður, réðst hann í miklar byggingaframkvæmdir í borginni. Bræðurnir unnu saman í allmörg ár. Hólmfríður flutti vestur árið 1911 til Winnipeg en þangað hafði bróðir hennar, Gunnlaugur, flutt nokkrum árum áður.