Frímann Bjarnason

ID: 8286
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1936

Frímann Bjarnason fæddist 17. október, 1855 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn á Akureyri 6. nóvember, 1936. Frímann B. Anderson vestra.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann flutti vestur til Ontario árið 1874 og settist að í Toronto. Þar bjó hann ein tíu ár en flutti svo vestur til Winnipeg. Þar hóf hann útgáfu á Heimskringlu, sem kom fyrst út 9. september, 1886. Ritstýrði hann blaðinu fyrst um sinn en seldi svo prentsmiðjuna og blaðið. Hann var í Winnipeg til ársloka 1888, fór þá til Bandaríkjanna og þaðan til Kaupmannahafnar. Endaði svo aftur á Íslandi eftir dvöl í London og París.