Gísli Guðmundsson

ID: 20153
Dánarár : 1913

Gísli Guðmundsson fæddist á Vestfjörðum. Dáinn á Point Roberts árið 1913. Goodman vestra.

Maki: Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir f. í Barðastrandarsýslu árið 1861.

Börn: 1. Sveinsína f. á Íslandi árið 1888 2. Herdís f. í Kanada árið 1896.

Þau fluttu til Vesturhaims árið 1889 og voru fyrst í Winnipeg í nokkur ár. Þaðan lá leiðin vestur að Kyrrahafi þar sem þau bjuggu um skeið á Victoria á Vancouver-eyju. Fóru svo á Point Roberts og settust að á landi sem faðir Sigurbjargar og bróðir hennar Bent, höfðu fyrst numið.  Réttinn til að búa þar fengu þau árið 1908 og tóku strax til hendinni, hreinsuðu landið og byggðu sér hús.