
Gordon Douglas Breckman Mynd VÍÆ III
Gordon Douglas Breckman fæddist í Winnipeg 10. júlí, 1921.
Maki: 7. nóvember, 1951 Ruth Mary Forrester f. í Emerson í Manitoba 8. ágúst, 1932.
Börn: 1. Douglas Einvarður f. í Lundar, 30. september, 1952. 1. Susan Ingibjörg f. í Kingston, Ontario 28. desember, 1955.
Gordon var sonur Einvarðs Breckman og Halldóru Ingibjörgu Jónsdóttur í Lundar og Winnipeg. Hann lauk grunnskólanámi í Daniel MacIntyre skóla í Winnipeg árið 1940 og nam vísindi í University of Manitoba í borginni í þrjú ár. Fór síðan til Kingston í Ontario þar sem hann lauk námi vélfræði í Royal Schools of Signals árið 1955. Hann gekk í kanadíska herinn og var í hersveitum Sameinuðu Þjóðanna í Egyptalandi 1957 og her Atlantshafsbandalagsins í Evrópu 1959-1962. Hann var major í kanadíska hernum og hlaut heiðursmerki hersins. (Canadian Forces Decoration). Ruth Mary var kanadískrar ættar.