ID: 8411
Fæðingarár : 1884
Dánarár : 1954

Gottfreð Jóhannsson Mynd Lögberg 1954
Jónas Gottfreð Jóhannsson fæddist 26. ágúst, 1884 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn á Point Roberts 3. janúar, 1954.
Maki: 2. júlí, 1908 í Winnipeg Sólveig Guðmundsdóttir f. í Rangárvallasýslu árið 1876.
Börn: 1. Jóhann f. 1912 2. Guðrún f. 1914, d. 1942 3. Bergljót Karólína f. 1916.
Jónas var sonur Karólínu Jónasdóttur og Jóhanns Jóhannssonar. Hann flutti vestur til Winnipeg, með móður sinni, árið 1887 en faðir hans fór vestur árið 1884. Jónas ólst upp í borginni og þangað kom Solveig árið 1904. Þar gengu þau í hjónaband og vann Jónas við trésmíðar. Árið 1914 fluttu þau vestur á Point Roberts tanga og bjuggu þar alla tíð.
