Grímur J Magnússon

ID: 1764
Fæðingarár : 1895

Grímur Júníus Magnússon og Lára Ósk Þorsteinsdóttir Mynd FaF

 Grímur Júníus Magnússon fæddist  í Gullbringusýslu 17. júní, 1895.

Maki: 1923 Lára Ósk Þorsteinsdóttir f. í Reykjavík 7. júlí, 1903.

Börn: 1. Jón Þórður 2. Þórunn Sigríður 3. Þorsteinn Ólafur.

Grímur var sonur Magnúsar Grímssonar og Sigríðar Jónsdóttur í Nýlendu. Hann var tekinn í fóstur af Þórði Einarssyni og Guðbjörgu Þorláksdóttur  sem tóku hann með sér til Vesturheims árið 1900. Guðbjörg lifði ekki lengi í Vesturheimi svo Þórður kom drengnum í fóstur hjá Jóni Pálssyni og Agnesi Magnúsdóttur, landnema í Vatnsdal í Geysirbyggð. Þar var annað barn tekið í fóstur, Lára Ósk Þorsteinsdóttir. Grímur tók við búskap í Vatnsdal þar sem þau bjuggu. Bæði tóku mikinn þátt í félagsmálum í byggðinni, voru í Geysirsöfnuði og kenndi Lára í sunnudagaskólanum.