Grímur Ólafsson fæddist árið 1867 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Minnesota árið 1938.
Maki: Björg Sigfúsdóttir f. 27. maí, 1873, d. 15. júní, 1966 í Roseau í Minnesota.
Börn: 1. Milton f. 13. júlí, 1895 2. Sigfús f. 1. nóvember, 1896 3. Ólafur f. 17. júlí, 1898 4. Wilhelm f. 24. október, 1900 5. Lára (Laura) Sigurrós f. 11. febrúar, 1903 6. Louis f. 18. mars, 1905 7. Clarence f. 12. maí, 1907 8. Evelyn f. 1910 9. Alice f. 30. apríl, 1912.
Foreldrar Gríms, Ólafur Ólafsson og Guðrún Halldórsdóttir fluttu vestur til Kanada árið 1876 með börn sín. Þau námu land í Árnesbyggð í Nýja Íslandi en fluttu seinna til N. Dakota og bjuggu nærri Mountain. Björg fór vestur árið 1879 með sínum foreldrum, Sigfúsi Bjarnasyni og Helgu Gunnlaugsdóttur landnemum í Henselbyggð í N. Dakota. Grímur og Björg settust að í Roseau í Minnesota og námu land í Pohlitz hreppi.
