Grímur Snjólfsson

ID: 12167
Fæðingarár : 1824
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1913

Grímur Snjólfsson fæddist árið 1824 í N. Múlasýslu. Dáinn í Lundarbyggð 31. mars, 1913.

Maki: Guðlaug Gísladóttir f. 1822, d. á Íslandi.

Börn: 1. Gísli f. 1854 2. Vigdís f. 1855 3. Vilhjálmur f. 1856 3. Pálína f. 1859 4. Kristján Grímsson f. 1864.

Grímur og Vilhjálmur fluttu saman vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Þar tók Gísli á móti þeim en hann hafði flutt vestur 1888. Stefán Ólafsson, vinur Gísla, hafði opnað mjólkurbúð á Toronto stræti og átti fáeinar kýr sem Gísli annaðist. Nýkomnir feðgar bjuggu hjá Gísla en fljótlega fékk Vilhjálmur starf hjá borginni. Árið 1901 flutti Stefán á land í Lundarbyggð og fóru Gísli og Grímur með þangað norður. Bjó Grímur þar til dauðadags.