
Guðbjörg Kristín Eggertsdóttir Mynd VÍÆ IV
Guðbjörg Kristín Eggertsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 5. júlí, 1905.
Ógift og barnlaus.
Guðbjörg var dóttir Eggerts Sigurgeirssonar og Svanhildar Sigurbjörnsdóttur og fór hún með þeim vestur um haf ársgömul. Þau komu fyrst til Winnipeg en fóru sama sumar (1906) norður á Siglunes þar sem þau settust að. Guðbjörg gekk þar í miðskóla og hélt svo námi áfram í Daniel McIntyre Collegiate í Winnipeg. Næst tók við kennaranám í Winnipeg Normal School gerðist svo kennari og kenndi á ýmsum stöðum í Manitoba. Hún stundaði seinna tónlistarnám við Manitobaháskóla lauk þaðan prófi árið 1948 í hljómfræði og tónlistarsögu. Bætti svo við námi í raddbeitingu og píanóleik. Árið 1949 flutti hún vestur til Vancouver þar sem hún kenndi tónlist, lauk síðan B.A. prófi frá University of British Columbia árið 1960.
