Guðjón Finnsson fæddist í N. Múlasýslu 13. júní, 1867. Dáinn á Betel í Gimli, Manitoba 27. apríl, 1962.
Maki: 10. nóvember, 1896 Guðrún Grímsdóttir f. 22. maí, 1875, d. 9. júní, 1952 í Gimli.
Börn: 1. Grímur f. 17. júní, 1898 2. Einar Aðalsteinn f. 5. maí, 1899 3. Kristjón f. 17. maí, 1900 4. Jón f. 1903, d. á Íslandi 1904 5. Óskar Eggert f. í Riverton 3. apríl, 1906 6. Grímur Ólafur Pá f. 14. mars, 1908 7. Finnur f. 11. ágúst, 1910 8. Friðrika f. 9. febrúar, 1913 9. Jón Friðfinnur f. 16. ágúst, 1916.
Guðrún fór vestur til Winnipeg í Manitoba með Grím og Einar árið 1904 en Guðjón kom með Kristjón ári síðar. Þau fóru í Fljótsbyggð og voru þar til ársins 1910 en þá fluttu þau í Ísafoldarbyggð. Þar voru þau með búskap til ársins 1920, fluttu þá til Gimli og ári seinna þaðan til Selkirk. Árið 1949 sneru þau aftur til Gimli og dóu þar.
