
Guðjón Sveinsson Storm

Ingiríður Sigurðardóttir
Guðjón Sveinsson fæddist 8. febrúar, 1856 í N. Múlasýslu. Dáinn 29. nóvember, 1936. Storm eftirnafn vestra.
Maki: Ingiríður Sigurðardóttir f. 31. ágúst, 1879 í N. Múlasýslu
Börn: 1. Sveinn Júlíus f. 13. júlí, 1898 2. Helga f. 17. apríl, 1900, d. 6. janúar, 1926 3. Sigurður f. 25. júní, 1904 4. Lillian Guðlaug f. 19. júní, 1906 5. Ágúst f. 19. október, 1907, d. 9. september, 1908 6. Friðjón Tryggvi f. 1913 7. Kristján f. 1916 8. Murrey f. 23. febrúar, 1923.
Guðjón fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1879 og settist að í Argylebyggð árið 1882 og nam land suðvestur af Glenboro. Bjó þar fram yfir aldamótin en þá fór hann í Suður Cypress byggðina og keypti land suðaustur af Cypress River. Ingiríður fór með móður sinni og bróður vestur til Manitoba árið 1893.
