Guðmundur Björnsson

ID: 20109
Fædd(ur) vestra

Guðmundur Björnsson fæddist í N. Dakota.

Maki: Hólmfríður Sveinsdóttir f. í N. Dakota 18. mars, 1890.

Börn: upplýsingar vantar.

Guðmundur var sonur Björns Jósefssonar og Þóru Guðmundsdóttur landnema í N. Dakota árið 1883. Fluttu í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og námu land í Kandahar/Dafoe byggð. Þar ólst Guðmundur upp og hóf búskap með konu sinni í Elfros. Þau fluttu seinna til Saskatoon. Hólmfríður var dóttir Sveins Kristjánssonar og Veroníku Þorkelsdóttur landnema í N. Dakota árið 1883.