ID: 10790
Fæðingarár : 1891
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla

Guðmundur Friðriksson Mynd VÍÆ II
Guðmundur Friðriksson fæddist á Langanesi í N. Þingeyjarsýslu 9. ágúst, 1891.
Maki: 1) Emma Braathen f. 18. maí, 1912, d. 1937 2) 19. júní, 1943 Líneik Benjamínsdóttir f. 25. september, 1892 í Grunnavatnsbyggð í Manitoba.
Börn: Með Emmu 1. Mildred f. 28. ágúst, 1932 2. Friðrik f. 25. janúar, 1934 3. Emerson Long f. 13. mars, 1937.
Guðmundur flutti vestur til Saskatchewan árið 1905 með foreldrum sínum, Friðriki Guðmundssyni og Þorgerði Jónsdóttur. Þau námu land við Mozart í Vatnabyggð. Guðmundur gerðist bóndi í byggðinni en tók virkan þátt í samfélagsmálum. Hann sat í sveitarstjórn árið 1928 -52 og oddviti var hann frá 1938. Vann einnig mikið fyrir samvinnufélög byggðarinnar.
