ID: 11544
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Guðmundur Jón Jónsson fæddist 1. desember, 1867 í N. Múlasýslu. Gudmundur J. Rafnson og seinna John Robinson vestra.
Maki: Þorgerður Einarsdóttir f. 1874 í N. Múlasýslu.
Börn: 1. Ólöf f. 1894 2. Celia f. 20. maí, 1897 3. Lillian f. 1898 4. Dorothy f. 1912.
Guðmundur fór vestur til Minnesota árið 1888, faðir hans, Jón Rafnsson fór þangað ári síðar. Þorgerður flutti vestur árið 1877 með foreldrum sínum, Einari Jónssyni og Ólöfu Grímsdóttur. Þau settust að í Yellow Medicine sýslu í Minnesota. Guðmundur og Þorgerður bjuggu nokkur ár í S. Dakota þar sem dætur þeirra Celia og Lillian fæddust. Fluttu seinna aftur til Minnesota þar sem Guðmundur var hótelstjóri í Detroit Lakes, Becker sýslu í Minnesota árið 1920.
