Guðmundur Pálsson

ID: 13574
Fæðingarár : 1887
Dánarár : 1959

Guðmundur Pálsson fæddist á Seyðisfirði 4. júlí, 1887. Dáinn í Vatnabyggð 21. október, 1959.

Maki: 15. október, 1915 Kristveig Björnsdóttir f. í N. Þingeyjarsýslu 28. maí, 1898.

Börn: 1. Hólmfríður f. 7. október, 1916 2. Valgerður f. 22. september, 1918 3. Arnold f. 23. desember, 1920 4. Gladys f. 9. nóvember, 1922 5. Gunnar f. 5. mars, 1926 6. Ramona f. 7. júlí, 1931.

Guðmundur flutti vestur árið 1888 með foreldrum sínum, Páli Guðmundssyni og Dorothea Guðmundsdóttur. Þau settust að í Winnipeg. Árið 1910 flutti Guðmundur vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan og nam land í Hólarbyggð. Þar var hann með búskap og vann einnig við smíðar til ársins 1948. Það ár hætti hann búskap, flutti til Elfros og hélt áfram að vinna við smíðar. Þar var hann virkur í samfélagsmálum, sá um þrif og viðhald kirkju og samkomuhúss staðarins.  Foreldrar Kristveigar voru Björn Jónsson Axfjörð og Valgerður Þorláksdóttur sem vestur fluttu árið 1903.