Guðný Guðmundsdóttir

ID: 2467
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1894

Guðný Guðmundsdóttir fæddist í Borgarfjarðarsýslu 15. nóvember, 1853. Dáin árið 1894 í Nýja Íslandi.

Maki: Jón Bjarnason fæddist í Borgarfjarðarsýslu 18. desember, 1854, d. í Nýja Íslandi 4. janúar, 1919.

Börn: 1. Solveig (Veiga) f. á leiðinni til Vesturheims í júlí, 1887 2. Bjarni (Barney) f. 4. mars, 1891 í Duluth í Minnesota 3. Guðný Helga f. 1894 í Nýja Íslandi.

Jón og Guðný fluttu vestur um haf árið 1887, samferða bróður Jóns, Einari og konu hans, Sesselju sem var systir Guðnýjar. Þau komu fyrst til Ontario í Kanada og byrjuðu á því að heimsækja Ingveldi Guðmundsdóttur, systur Guðnýjar og Sesselju. Hún bjó í Muskoga héraði í Ontario og hafði þangað flutt ásamt eiginmanni og börnum árið 1878. Þaðan lá leið Jón og Guðnýjar til Duluth í Minnesota þar sem þau bjuggu einhvern tíma. Þau fóru þaðan til Winnipeg en voru sest að í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi  síðla árs 1893.