Guðný Þorsteinsdóttir

ID: 1023
Fæðingarár : 1864
Dánarár : 1958

Guðný og Einar með barnahópinn. Mynd Internet

Guðný Þorsteinsdóttir fæddist í Grindavík 23. mars, 1864. Dáin í Manitoba 18. nóvember, 1958.

Maki: 1898 Einar Guðmundur Tómasson fæddist 13. október, 1867 í Árnessýslu. Þau skrifuðu sig Tomasson eða Thomasson vestra

Börn: 1. Thomas Guðmundur f. 2. desember, 1900 2. Steinunn f. 28. apríl, 1903, d. 11. október, 1936 3. Kristinn Ragnar f. 19. mars, 1906 4. Sigríður f. 18. janúar, 1909.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900 og settist að á Big Point sama ár. Fluttu norður í Bluff (Reykjavík P.O.) árið 1904 og þaðan 1909 til Beaver, rétt sunnan við Westbourne. Bjuggu þar á sínu landi til ársins 1946 en fluttu þá til sonar síns, sem var bóndi í sömu sveit.