ID: 7733
Fæðingarár : 1838
Dánarár : 1924
Guðrún Helgadóttir fæddist 20. júlí, 1838 í Skagafjarðarsýslu. Dáin 10. apríl, 1924 í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi.
Maki: 26. október, 1863 Sigurður Guðmundsson f. í Skagafjarðarsýslu 11. júní, 1830, d. í Fljótsbyggð 3. september, 1911.
Börn: 1. Solveig f. 29. október, 1865 2. Helga f. 15. nóvember, 1866 3. Magnús f. 9. september, 1868 4. Guðrún f. 21. september, 1870 5. Marín f. 1880. Helga flutti vestur árið 1883 en Guðrún með foreldrum sínum 1886.
Sigurður og Guðrún fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886 og fóru í Ísafoldarbyggð til Stefáns Jónssonar og konu hans, Ingibjargar, en þau höfðu annast Helgu allmörg ár og fór Helga með þeim vestur. Þar voru Sigurður og Guðrún fáein ár en settust svo að í Fljótsbyggð.