ID: 20177
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1898
Guðrún Helgadóttir fæddist árið 1898 á Point Roberts. Thordarson gift kona.
Maki: Þórður Benjamín Þórðarson f. 28. janúar, 1892 í V. Skaftafellssýslu. Ben Thordarson vestra.
Börn: Helgi f. 1918 2. Dagbjört Hilda f. 1920 3. Margrét f. 1923.
Guðrún var dóttir Helga Þorsteinssonar og Dagbjartar Dagbjartsdóttur landnema á tanganum. Þórður var sonur Þórðar Jónssonar og Ragnhildar Jónsdóttur á Hellum í Mýrdal. Faðir hans lést áður en hann fæddist svo móðir hans annaðist uppeldið. Árið 1910 fór hann til Vesturheims og 1915 sest hann að á Point Roberts tanganum. Þórður vann lengi hjá niðursuðufyrirtækinu Alaska Packers Association á Point Roberts.