Guðrún Jónsdóttir

ID: 9710
Fæðingarár : 1880

Guðrún Jónsdóttir Mynd VÍÆ II

Guðrún Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 19. maí, 1880.

Maki: 1. júlí, 1899 Guðmundur Guðmundsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 4. október, 1867. Dáinn 25. september, 1941 í N.Dakota.

Börn: 1. Sveinbjörn f. 13. september, 1890 2. Guðmundur f. 1. janúar, 1892 3. Torfi f. 6. febrúar, 1893. Guðmundur átti þau með fyrri konu, Sigurlaugu Sveinbjarnardóttur er lést 1895. Guðrún gekk þeim í móður stað en eftirtalin börn eignaðist hún með manni sínum.: 1. Sigurlaug f. 27. janúar, 1900 2. Jónína f. 2. júní, 1901 3. Conrad f. 27. maí, 1903 4. Sigríður f. !8. janúar, 1905 5. Þórarinn f. 24. febrúar, 1907 6. Valtýr f. 5. febrúar, 1910 7. Erling f. 17. júní, 1911 8. Lawrence f. 18. mars, 1913 9. Sofia f. 16. september, 1914 10. Guðmundur f. 22. október, 1916 11. Kristinn Finnbogi f. 4. janúar, 1920.

Guðmundur var sonur Guðmundar Jóhannessonar og Sigríðar Aradóttur sem vestur fluttu árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Árið 1880 fóru þau suður til N. Dakota og námu land nærri Mountain.  Foreldrar  Sigurlaugar voru Sveinbjörn Jóhannesson og Þorbjörg Eiríksdóttir sem sömuleiðis fluttu vestur árið 1876. Guðrún var dóttir Jóns Þórarinssonar d. á Íslandi 25. apríl, 1891 og Þuríðar Sveinsdóttur. Þuríður flutti vestur með börn sín sama ár og fór til Þórvarar systur sinnar í Long Pine í Nebraska. Þaðan lá leið hennar til N. Dakota árið 1896 og þar kynntust Guðmundur og Guðrún. Þau voru bændur nálægt Mountain.