ID: 13536
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla

Gunnar Gíslason Mynd VÍÆ II
Gunnar Björgvin Gíslason fæddist 20. nóvember, 1877 í S. Múlasýslu.
Maki: Anna Jakobína Bjarnadóttir f. 24. júlí, 1887 í Saskatchewan.
Börn: 1. Bjarni Haraldur f. 15. september, 1914 2. Jarþrúður Karólína f. 8. janúar, 1916.
Gunnar Gíslason fór vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Gísla Jónsyni og Jarðþrúði Halldórsdóttur sem settust að í Akrabyggð. Þar óx Gunnar úr grasi og fór með foreldrum sínum og Halldóri, bróður sínum til Roseau sýslu í Minnesota. Þar var hann bóndi í 9 ár en 1904 flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan og nam land nærri Elfros. Anna var dóttir Bjarna Stefánssonar og Elínar Eiríksdóttur sem bjuggu í Þingvallabyggð í Saskatchewan.
