Halldór Árnason

ID: 10487
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1932

Halldór Árnason Mynd Brot

Sigríður Jónasdóttir Mynd Brot

Halldór Árnason fæddist 3. október, 1851 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn 22. september, 1932.

Maki: Sigríður Jónasdóttir f. 16. apríl, 1858 í  N. Þingeyjarsýslu, d. 22. júní, 1930.

Börn: 1. Árni 2. Snorri 3. Jónas f. 15. mars, 1884 í Argylebyggð, d. 29. september, 1955 í Winnipeg.

Halldór fór vestur til Ontario í Kanada, samferða Skúla, tvíburabróður sínum árið 1873. Þeir fengu vinnu í Collingwood og Parry Sound fljótlega eftir komuna vestur. Fóru þaðan suður til Wisconsin og fengu vinnu hjá bændum. Þeir sneru aftur til Kanada árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Þeir námu sitthvort landið sunnarlega í nýlendunni og nefndu Bræðraborg.  Fljótlega kom í ljós að erfitt var þar að afla heyja svo þeir fluttu þaðan norður að Dvergasteini í sömu byggð. Þeir fluttu í Argylebyggð árið 1881.